Þjónusta á Akureyri og í Eyjafirði

Tæknin á að virka. Þegar hún gerir það ekki, kem ég og laga.

Ég heiti Birgir, kallaður Biggi. Ég hjálpa heimilum og litlum fyrirtækjum með tölvur, netið, sjónvarpið og snjalltækin, og útskýri á mannamáli hvað fór úrskeiðis.

Hringja í 666 4486 Spjalla á Messenger
Birgir Ólafsson BIGGI @ TLR

Hvað get ég gert fyrir þig?

Ég kem á staðinn, finn hvað er að og laga það. Ef það borgar sig ekki að laga, segi ég þér það.

HEIMILI
  • Wi-Fi sem nær ekki inn í öll herbergi
  • Sjónvarp, myndlykill og streymisveitur
  • Tölva, prentari, sími og spjaldtölva
  • Snjalltæki, myndavélar og heimilisöryggi
  • Gögn og myndir úr biluðum síma eða tölvu
FYRIRTÆKI
  • Öryggisúttekt á neti og tölvum
  • Netuppsetning og netstyrking
  • Lén, tölvupóstur eða hýsing í ólagi? Ég kem því í lag
  • Reglulegt eftirlit og öryggisuppfærslur í áskrift
  • Sérsmíðuð kerfi, vefir og ráðgjöf

Á verkstæðinu

VHS-spóla færð yfir á USB-lykil

Gömlu spólurnar yfir á stafrænt form

VHS, MiniDV, Hi8 og fleiri. Fjölskyldumyndböndin færð yfir á skrá eða minnislykil áður en spólurnar gefa sig.

Reikna verð á minningar.tlr.is
Sprengimynd af 3D-prentuðum kassa utan um rafrás

3D prentun og sérsmíði

Varahlutur sem fæst ekki lengur, festing sem passar akkúrat eða frumgerð að nýrri hugmynd. Ég hanna og prenta.

Sendu mér lýsingu á Messenger

Úr smiðjunni

Tæki sem ég hanna og smíða sjálfur, hér fyrir norðan.

{{p.screen}}

{{p.name}}

{{p.text}}

Viltu selja eða kaupa notað? Skoða smáauglýsingavefinn

Teiknuð mynd af Bigga að gera við gamla tölvu

Um Bigga

Ég bý í Hörgársveit og hef unnið með tölvur, rafeindabúnað og hugbúnað í mörg ár. Ég smíða rafrásir, forrita vefi og byggði húsið okkar sjálfur, svo ég gefst ekki upp þótt eitthvað sé snúið.

TLR er eins manns fyrirtæki. Þú talar alltaf við mig.

TÖKUM SPJALLIÐ 666 4486 Spjalla á Messenger

Líka á Facebook og Instagram.